Jónína Daníelsdóttir

ID: 8901
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Jónína Daníelsdóttir Mynd VÍÆ II

Jónína Sigurmunda Daníelsdóttir fæddist 26. september 1879 í Eyjafjarðarsýslu.

Maki: 1) 1898 Jóhannes Davíðsson f. árið 1870 í Eyjafjarðarsýslu, d. árið 1938 í Leslie. 2) 12. október, 1945 Sigurður Guðmundsson f. í Skagafjarðarsýslu 19. september, 1882.

Börn: Með þeim vestur árið 1913 fór 11 ára frænka Jóhannesar. Sú hét Steinunn Ingibjörg Guðmundsdóttir f. 16. mars, 1902 í Eyjafjarðarsýslu. Bjó hún hjá þeim til fullorðinsára.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900, þar sem þau bjuggu í fimm ár. Fluttu þá í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land nærri Foam Lake þar sem þau bjuggu í sjö ár til ársins 1912. Þá fluttu þau heim til Íslands en leist ekki á og fóru aftur til Vatnabyggða í Saskarchewan ári síðar. Nú bjuggu þau í þorpinu Leslie næstu þrjú árin, keyptu svo land þar nærri þar sem þau bjuggu til ársins 1937, fluttu þá aftur til Leslie.  Sigurður flutti vestur árið 1906 bjó á ýmsum stöðum í Manitoba til ársins 1927. Flutti þá í Vatnabyggð í Saskatchewan.