Jónína S Jónsdóttir

ID: 5058
Fæðingarár : 1885
Fæðingarstaður : Strandasýsla

Björn Halldorson d. í Frakklandi 1944. Mynd TSPL

 Jónína Sigríður Jónsdóttir fæddist í Strandasýslu 8. nóvember, 1885. Halldorson vestra.

Maki: Björn Halldórsson f. í Húnavatnssýslu árið 1881.

Börn: 1. Theodór 2. Haraldur (Harold) 3. Björg (Bjorg) 4. Pearl 5. Kristín (Kristin) 6. Earnest 7. Percy 8. Margrét (Margaret) 9. June 10. Bjarni f. 10. ágúst, 1912, d. 1944. Börnin öll tóku föðurnafn Björns

Björn fór vestur til Winnipeg í Manitoba með föður sínum og eldri bróður árið 1889. Þeir fóru fyrst til Pembina í N. Dakota. Björn fylgdi fóður og bræðrum þaðan á skagann Bluff, vestan Manitobavatns og út í Red Deer Lake. Þaðan fór Björn á Big Point árið 1902, hóf fyrst búskap á landi Ólafs Hannessonar en flutti í Langruth og fékkst við smíðar og fiskveiðar. Jónína fór vestur árið 1888 með móður sinni, Sigríði Friðriksdóttur.