Júlíus Jóhannsson

ID: 8988
Fæðingarár : 1875
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1957

Júlíus Jóhannsson og Margrét Eiríksdóttir Mynd Brot

Júlíus Jóhannsson fæddist í Grenivík í Eyjafjarðarsýslu 9. júlí, 1875. Dáinn 12. nóvember, 1957 í Nýja Íslandi. Skrifaði sig Júlíus J. Sigurður vestra.

Maki: 1) 9. júní, 1898 Margrét Eiríksdóttir, d. 16. október, 1903 2) 4. ágúst, 1917 Þórunn Björg Pétursdóttir f. 1887, d. 1. apríl, 1956.

Börn: Með Margréti 1. Jóhann Eiríkur 2. Margrét Dórothea Helga d. stuttu eftir fæðingu.

Júlíus flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Jóhanni Sigurðssyni og Jóhönnu Jónatansdóttur og systkinum árið 1878. Hann ólst upp í Winnipeg og Selkirk en aðeins 13 ára var hann farinn að vinna á Winnipegvatni. Stundaði bæði fiskveiðar og vöruflutninga. Nam land í Fljótsbyggð sem hann kallaði Grenivík og bjó þar í nærri 50 ár.