Júlíus Jónsson fæddist 1. júlí, 1861. Dáinn í Salt Lake City 9. desember, 1935. Julius Jon Bearnson vestra.
Maki: 1) 12. janúar, 1887 Gróa Þorláksdóttir f. 3. maí, 1865 í V. Skaftafellssýslu, d. 16. febrúar, 1890 eftir barnsburð. 2) 26. október, 1892 Harriet Susannah Hales f. 22. júní, 1866.
Börn: Með Gróu 1. Júlíus Benedikt f. 20. október, 1887, d. 17. október, 1959 2. Joseph f. 6. febrúar, 1890, d. 7. mars, 1890. Með Harriet 1. William Leroy f. 1893, d. 1946 2. John Ward f. 1896, d.1896 3. Thomas Hales f. 1898, d. 1898 4. Elda Gróa f. 1900, d.1987 5. Alta Gerða f. 1903, d. 1995 6. Donna Louise f. 1905, d.1905 7. Roland Fay f.1906, d.1906 8. Lafitte Rollin f. 1907, d.1907 9. James Monroe f. 1909, d. 1983 10. Merrill George f. 1912, d.1983.
Júlíus tók trú Mormóna 2. júní, 1883 hjá trúboðanum Pétri Valgarðssyni sem þá var á Íslandi. Júlíus fór síðan vestur til Utah í júlí sama ár. Hann settist að í Scofield þar sem hann starfaði sem slátrari en einnig vann hann við námugröft. Hann vann við slátrun á ýmsum stöðum í Utah en 1928 settist hann að í Salt Lake City og bjó þar.
