
Kári Byron Mynd VÍÆ III
Kári Stefánsson fæddist á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu 25. mars, 1892. Byron vestra.
Maki: 14. júlí, 1919 Anna Sigurðardóttir f. 6. nóvember, 1900.
Börn 1. Stefán f. 24. febrúar, 1921 2. Sigurður f. 3. mars, 1924 3. Haraldur Jón f. 15. ágúst, 1925 4. Lillian Sigríður f. 14. janúar, 1927. Fóstursonur Friðrik Þorsteinn Þorkelsson.
Foreldrar Kára, Stefán Björnsson og Guðbjörg Sigurðardóttir fluttu með hann vestur árið 1893. Þau settust að í Grunnavatnsbyggð þar sem Kári ólst upp. Hann bjó nokkur ár í Clarkleigh í Manitoba áður en hann settist að í Lundar. Þar var hann með búskap, stundaði líka fiskveiðar og rak fiskverslun. Þá rak hann gistiheimili í bænum. Hann lét til sín taka í samfélagsmálum, formaður og varaforeti ýmissa félaga og stofnana. Anna var dóttir Sigurðar Jónssonar og Sigríðar Guðmundsdóttur sem vestur fluttu sumarið 1900.