Karl Jónsson

ID: 11589
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1966

Karl Jónsson Mynd A Century Unfolds

Karl Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 14. febrúar, 1874. Dáinn á Gimli 17. janúar, 1966. Vopni vestra.

Maki: 1914 Þorbjörg Eiríksdóttir f. 23. júlí, 1888 í Minneota í Minnesota, d. 1944 í Arborg.

Börn: 1. Hilda f. 1915 2. Edward f. 1916 3. Wilberg Eric f. 1918 4. Karl f. 1919 4. Anna 5. Þorbjörn Hermann (Thorburn Herman) f. 1925 6. Jóhanna.

Karl flutti vestur til Manitoba árið 1893 og vann hjá bróður sínum Jóni við húsbyggingar. Þorbjörg var dóttir Eiríks Jónssonar og Vilborgar Stefánsdóttur sem settust að í Minnesota. Þau fluttu norður í Arborg árið 1901. Karl og Þorbjörg bjuggu í Winnipeg til ársins 1919 fluttu þaðan í Kenville en 1923 voru þau sest að á landi skammt frá Arborg.