Kristbjörg Bergþórsdóttir

ID: 4174
Fæðingarár : 1832
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1894

Kristbjörg Bergþórsdóttir fæddist. 13. ágúst, 1832 í Dalasýslu, d. 13. desember, 1894 í Saskatchewan.

Maki: Jón Ólafsson f. 15. janúar, 1828 í Dalasýslu, d. í Saskatchewan 15. ágúst, 1890.

Börn: 1. Bergþór Ólafur f. 21. september, 1853, d. 25. júní, 1909 2. Björn Hallgrímur f. 24. nóvember, 1857, d. 27. maí, 1936 3. Benedikt f. 17. nóvember, 1862, d. 20. apríl, 1917 4. Ása Solveig f. 7. júlí, 1876, d. 1945.

Jón og Kristbjörg fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 með Ásu dóttur sína. Bergþór Ólafur sonur þeirra hafði farið vestur þangað með sína konu árið 1886. Jón fór vestur í Þingvallabyggð í Saskatchewan sama ár og dvöldu þau hjón með Ásu hjá Tómasi Pálssyni fyrsta veturinn. Næsta vor nam hann land í byggðinni.