ID: 10938
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Kristín Jóhannesdóttir fæddist 7. janúar, 1857 í Dalasýslu.
Maki: 19. maí, 1885 Sveinn Sveinsson f. á Daðastöðum í N. Þingeyjarsýslu 12. mars, 1856. Dáinn 1916 í Manitoba.
Börn: 1. Jóhannes 2. Kristján d.1958 3. Sveinn 4. Ingiberg.
Sveinn fór vestur árið 1879 og vann víða í Manitoba. Kristín fór vestur árið 1882. Þau hófu búskap í Grunnavatnsbyggð og voru þar til ársins 1894. Það ár fluttu þau í Hólabyggð og nam Sveinn land norðaustur af Glenboro. Hann keypti land nærri Assiniboine ánni og stundaði griparækt.
