ID: 5485
Fæðingarár : 1876
Dánarár : 1925
Kristín Jónsdóttir fæddist 16. september, 1876 í Húnavatnssýslu. Dáin 16. desember, 1925 í N. Dakota.
Maki: Ingimundur Leví Guðmundsson fæddist í Húnavatnssýslu 15. september, 1870. Dáinn í N. Dakota 30. desember, 1905.
Barn: Guðrún f. 30. nóvember, 1904.
Kristín var dóttir Jóns Bjarnasonar og Elinborgar Bjarnadóttur sem vestur fluttu með börn sín Friðrik og Kristínu. Þau settust að í Sandhæðabyggð og bjuggu þar alla tíð. Ingimundur fór til Vesturheims eftir 1890 og settist að í Akrabyggð í N. Dakota. Þar var hann bóndi.
