Kristín Þorgrímsdóttir

ID: 11778
Fæðingarár : 1847
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1934

Kristín Þorgrímsdóttir fæddist í N. Múlasýslu 7. nóvember, 1847.

Maki: 1868 Guðvaldur Jónsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 4. október, 1841. Dáinn árið 1926 í Saskatchewan. Jackson vestra.

Börn: 1. Sigríður f. 1. nóvember, 1868 2. Guðjón f. 1874 3. Sigurveig f. 4. febrúar, 1876 4. Eymundur f. 19. júní, 1878 5. Stefanía f. 29. apríl, 1882 6. Elín (Ella) f. 7. september, 1885 7. Sigþrúður f. 1888. Guðvaldur átti dóttur með Agnesi Jónsdóttur: Björg f. 1880.

Guðvaldur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og sama ár áfram til N. Dakota með konu sína og sex börn þeirra. Elsta barnið, Sigríður, kom vestur með maka og sínum börnum árið 1903. Agnes, barnsmóðir Guðvalds fór vestur ári síðar með dóttur þeirra, Björgu. Guðvaldur nam land í Akrabyggð sunnan Tunguár. Hann seldi það árið 1899 og flutti til Roseau í Minnesota. Vorið 1907 seldi Guðlaugur allt sitt í Roseau og flutti til Winnipeg í Manitoba, dvaldi þar stutt því um sumarið er hann kominn á land sitt í Vatnabyggð í Saskatchewan.