Kristján Helgason

ID: 8811
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1920

Kristján Helgason og Halldóra Jóhannesdóttir Mynd Almanak 1917

Kristján Helgason fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1865. Dáinn í Saskatchewan árið 1920. Skrifaður Christjan vestra.

Maki: Halldóra Jóhannesdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1863.

Börn: 1. Helgi 2. Óskar Pálmi 3. Kristján Norman 4. Jóhannes Daníel 5. Lilja Guðbjörg 6. Þóra Aðalbjörg 7. Guðrún Kristjana 8. Jónína Rósa 9. Þórunn Halldóra

Kristján fór vestur til Ontario í Kanada með foreldrum sínum og systkinum árið 1874. Þau bjuggu í Kinmount fyrsta árið en fluttu þaðan til Nýja Íslands. Þar bjó Kristján fyrstu árin en flutti í Þingvallabyggð í Saskatchewan árið 1885. Bjó þar á landi sínu í sex ár en flutti árið 1891 á land í White Sands byggð. Þaðan fór hann í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1897 og nam land í Foam Lake byggð. Halldóra var dóttir Jóhannesar Bjarnasonar og Lilju G Daníelsdóttur sem vestur fluttu árið 1883.