
Kristján Kristjánsson, Svanfríður Jónsdóttir og börn Mynd SÍND
Kristján Gunnlaugur Kristjánsson fæddist 7. júlí, 1850 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn í Eyfordbyggð í N. Dakota, 31. mars, 1953.
Maki: 7. júní, 1877 Svanfríður Jónsdóttir f. 17. október, 1855, í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 20. maí, 1953.
Börn: 1. Rósa Guðrún f. í Riverton, Manitoba 30. ágúst, 1878 2. Jón Gunnlaugur f. Pembina, N. Dakota 9. maí, 1880 3. Tryggvi f. í Pembina, dó í fæðingu 4. Hannes f. í Mountain, ND 25. júlí, 1884 5. Kristbjörg f. 17. maí, 1886 6. Soffía f. 26. febrúar, 1888 7. Sigurbjörn f. 7. mars, 1890 8. Valdemar f. 25. nóvember, 1893 9. Kristján f. 25. október, 1895 10. Jóhann Júlíus f. 7. apríl, 1896 11. Sigurjón f. 10. janúar, 1899, d. 1902.
Kristján og Svanfríður fluttu vestur til Winnipeg árið 1878 og fóru strax til Nýja Íslands. Þaðan lá leiðin árið 1879 í Pembinabyggð og nam Kristján land rúma 6 km frá Pembina þorpinu. Þau fluttu þaðan til Mountain og námu land sunnan við þorpið árið 1883.
