ID: 10326
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1924
Kristján Sigurðsson fæddist árið 1845 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba árið 1924.
Maki: 1) María Jónsdóttir f. 1836 í S. Þingeyjarsýslu, d. 17. desember, 1909. 2) Stefanía Stefánsdóttir f. 27. febrúar, 1854 í Dalasýslu.
Börn: Halldóra Sigríður f. 1868, varð eftir á Íslandi. Þau tóku Jónínu Sigurveigu Guðnadóttur í fóstur.
Kristján og María fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 og þaðan í Argylebyggð. Voru þar í nokkur ár áður en þau fluttu til Glenboro rétt fyrir aldamótin. Stefanía fór vestur til Winnipeg árið 1901. Hún var fyrst í Keewatin í Ontario, þaðan fór hún til Winnipeg og seinna Álftárdalsbyggð. Flutti til Glenboro árið 1907. Hún efnaðist nokkuð á fasteignaviðskiptum og þótti mikil afrekskona.
