ID: 9541
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1960
Kristján Þorláksson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 6. mars, 1886. Dáinn á Betel í Gimli 30. maí, 1960.
Ókvæntur og barnlaus.
Hann flutti vestur til Manitoba árið 1893 með foreldrum sínum, Þorláki Jónassyni og Kristrúnu Pétursdóttur. Var með þeim í Argylebyggð og flutti svo með þeim árið 1909 til Dafoe í Vatnabyggð í Saskatchewan. Þar nam hann land og bjó á því til ársins 1938, flutti þá til Winnipeg og stundaði þar daglaunavinnu.
