ID: 9523
Fæðingarár : 1881
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1958
Kristjana Sigurgeirsdóttir fæddist 21. mars, 1881 í Reykjahlíð í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Manitoba 18. desember, 1958.
Maki: 23. október, 1908 Björn Þorláksson f. í S. Þingeyjarsýslu 20. október, 1884.
Börn: 1. Arnþór f. 13. júlí, 1911, d. 13. janúar, 1945 2. Kristján f. 10. desember, 1912 3. Hólmfríður María f. 19. febrúar, 1918.
Kristjana flutti vestur til Manitoba með föður sínum, Sigurgeir Péturssyni og Maríu Jónsdóttur konu hans árið 1893 og bjó hjá þeim í Argylebyggð og eftir 1908 í Siglunesbyggð við Manitobavatn. Björn flutti vestur til Winnipeg sama ár, með sama skipi, með foreldrum sínum, Þorláki Jónassyni og Kristrúnu Pétursdóttur. Hann bjó hjá þeim í Argylebyggð til ársins 1908, þá flutti hann norður í Silver Bay og nam þar land.
