ID: 9490
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1950
Kristjana Jóhannsdóttir fæddist 1863 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Manitoba 13. febrúar, 1950.
Maki:Guðmundur Guðnason f. 4. nóvember, 1876 í Dalasýslu, d. í Manitoba 18. ágúst, 1935. Guðmundur G Backman vestra.
Börn: Anna Guðrún
Kristjana Jóhannsdóttir fór vestur árið 1885, hún var alsystir Önnu, eiginkonu Skafta Arasonar landnámsmanns í Nýja Íslandi og Argylebyggð. Guðmundur fór vestur árið 1893 til Winnipeg í Manitoba og fékk vinnu hjá bónda fyrstu þrjú árin. Keypti land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1903 og flutti á það árið 1906 en land þetta var í Mozartbyggð. Hann seldi það 1910, flutti í Argylebyggð á land sem hann keypti þar og bjó á því til ársins 1919 en þá flutti hann til Glenboro.
