Kristmundur Benjamínsson

ID: 5235
Fæðingarár : 1841
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1914

Fjórar kynslóðir: Kristmundur og Sigurlaug með dótturdóttur sína Blossom. Fyrir aftan er Hilda (barnabarn) og Helga (dóttir) Mynd A Century Unfolds

Kristmundur Benjamínsson fæddur 5. apríl, 1841 í Húnavatnssýslu. Dáinn í Árdalsbyggð 25. ágúst, 1914.

Maki 1866 Sigurlaug Björnsdóttir fæddist 4. maí, 1848 í Húnavatnssýslu. Dáin 6. febrúar, 1923 í Árdalsbyggð í Manitoba.

Börn: 1.Helga Sigurbjörg f. 4. júlí, 1867, d. 1916 2. Björn f. 6. apríl, 1870, d. 29. júní, 1937 3. Marin f. 18. ágúst, 1872 4. Rannveig Sigríður f. 1880 á Gimli í Nýja Íslandi 5. Elisabet María (Elizabeth Mary) f. 14. október, 1881, d. 8. janúar, 1963 6. Jóhannes f. 15. febrúar, 1882, d. 28. júní, 1958 7. Ingunn (Inga) f. 1888 eða í ársbyrjun 1889 8. Jónína f. 25. september, 1890.

Fluttu vestur árið 1874 og voru í Kinmount, Ontario fyrsta veturinn. Fluttu til Nýja Íslands árið 1875, tóku land í Víðirnesbyggð, skammt frá Gimli og nefndu Fenhring. Bjuggu 2 ár í Pembina, N. Dakota. Árið 1902 fluttu þau í Árdals – og Framnesbyggð, tóku land og kölluðu Skógardal.