ID: 8793
Fæðingarár : 1839
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1906
Lilja Guðrún Daníelsdóttir fæddist árið 1839 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 11. maí, 1906 í Saskatchewan.
Maki: 1860 Jóhannes Bjarnason f. árið 1837 í Eyjafjarðarsýslu, d. 14. nóvember, 1922 í Saskatchewan.
Börn: 1. Guðrún Rósa f. 1862 2. Halldóra f. 1864 3. Þórunn f. 1868 4. Aðalbjörg f. 1873 5. Pálmi f. 1882.
Fluttu vestur til Manitoba og hófu búskap í Nýja Íslandi árið 1883. Fluttu þaðan eftir rúmlega árs dvöl til Winnipeg þar sem þau bjuggu næstum tvö ár. Þá fluttu þau í Þingvallabyggðina í Saskachewan þar sem þau bjuggu í sex ár. Þaðan lá leiðin í Vatnabyggð. Dóttir þeirra Aðalbjörg fór vestur til Winnipeg í Manitoba með Páli Gunnarssyni og konu árið 1878.
