Lúðvík Haraldsson

ID: 8758
Fæðingarár : 1891
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1956

Lúðvík Haraldsson fæddist 1. maí,1891 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn 8. ágúst, 1956 í Winnipeg. Hólm vestra.

Maki: Fanney Hjálmarsdóttir f. 30. ágúst, 1892, d. 19. ágúst, 1956.

Börn: 1. Elva 2. Albert 3. Hjálmar f. 14. september, 1920 4. Helga

Lúðvík var  sonur Haraldar Hólm Sigurðssonar og Helgu Gunnlaugsdóttur. Þau fluttu með börn sín vestur árið 1907 og settust að í Nýja Íslandi. Þau námu land í Víðirbyggð og vann Lúðvík lengi með þeim að búskapnum. Foreldrar Fanneyjar voru Hjálmar Árnason og Guðrún Helgadóttir. Þau gengu í hjónaband árið 1887 og ári seinna fluttu þau vestur til Kanada. Þau voru sömuleiðis landnemar í Manitoba. Lúðvík og Fanney voru bændur lengi, unnu fyrst á búi Hjálmars en seinna á eigin jörð. Þegar aldur færðist yfir fluttu þau til Winnipeg þar sem Lúðvík var umsjónarmaður nokkurra stórbygginga.