Magnea Sigurey Ólafsdóttir fæddist 9. maí, 1907 í Árdals- og Framnesbyggð í Nýja Íslandi.
Maki: 27. september, 1930 Sigurjón Arnþór Sigurjónsson f. í Árborg, Manitoba 17. janúar, 19
Börn: 1. Sigurjón Donald f. 18. júní, 1931 2. Arnþór Ólafur f. 13. september, 1935 3. John Randolph f. 27. júlí, 1945.
Foreldrar Magneu voru Ólafur Ólafsson Johnson og Ragnheiður Bjarnadóttir landnemar í Árdals- og Framnesbyggð. Sigurjón var sonur Sigurjóns Sigurðssonar, kaupmans í Árborg og Jónu G Jónsdóttur konu hans. Sigurjón var í námi í Jóns Bjarnasonar skólanum í Winnipeg árin 1922-1924, síðan verslunarstjóri í Árborg í mörg ár. Rak seinna smurstöð í þorpinu. Hann var í stjórn lútherska safnaðarins frá 1931, í mörg ár formaður. Tók virkan þátt í samfélagsmálum.