Magnús Benjamínsson

ID: 11364
Fæðingarár : 1875
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1963

Magnús Benjamínsson fæddist í N. Múlasýslu 19. apríl, 1875. Dáinn í Washingtonríki árið 1963. Michael Norland vestra.

Maki: 1910 Anna Kristín Jósefsdóttir f. 1878 í S. Múlasýslu, d. fyrir 1925 í N. Dakota.

Börn: 1. Bertha f. 14. desember, 1906 2. Christine f. c1909 3. John f. 20. maí, 1910 í N. Dakota 4. Jósef f. 22. febrúar, 1911 5. Anna Margrét f. 3. apríl, 1915 6. Rose f. 1918 7. Dale f. 20. janúar, 1921

Magnús flutti vestur til Minnesota með foreldrum sínum, Benjamín Þorgrímssyni og Gunnhildi Magnúsdóttur árið 1879. Sama ár fór Anna með sínum foreldrum, Jósef Arngrímssyni og Kristínu Jónsdóttur til Minnesota. Magnús og Anna ólust upp í íslensku byggðinni í suðvesturhorni ríkisins. Árið 1900 var Magnús byrjaður búskap í Lincoln sýslu en 1910 fluttu nýgift hjónin til N. Dakota og stunduðu búskap í fjöldamörg ár í McLean sýslu. Magnús bjó seinna í Underwood í N. Dakota en endaði í Seattle í Washington.