ID: 8317
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1890
Magnús Hallgrímsson fæddist 27. desember,1833 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn árið 1890 í Nýja Íslandi.
Maki: Sesselja Daníelsdóttir í N. Þingeyjarsýslu 1. apríl, 1834, d. 11. september, 1912.
Börn: 1. Ingólfur f. 2.júlí, 1874 2. Ármann f. 27. janúar, 1879 í Mikley. Sesselja átti dóttur 1. Friðrika S Jónsdóttr f. 1850 í N. Þingeyjarsýslu.
Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og voru fyrsta veturinn í Kinmount. Fluttu þaðan vestur til Nýja Íslands ári síðar og þraukuðu á Gimli fyrsta veturinn. Fluttu norður í Mikley og bjuggu þar til ársins 1883 en þá fóru þau í Fljótsbyggð. Sesselja flutti suður til N. Dakota eftir að Magnús féll frá og bjó þar til ársins 1897 en sneri þá aftur til Nýja Íslands.
