Margrét Árnadóttir

ID: 8463
Fæðingarár : 1868
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Margrét Árnadóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1868. Dáin í Manitoba fyrir 1950.

Maki: 1898 í Winnipeg Halldór Bjarnason f. 29. nóvember, 1862 í Dalasýslu, d. 29. janúar, 1954.

Börn: 1. Lára Guðrún 2. Anna Margrét 3. Otto Harald.

Margrét flutti vestur til Winnipeg árið 1893. Halldór fór þangað árið 1886 og var þar rúmt ár en flutti þá til Glenboro. Réðst í verslun Friðjóns Friðrikssonar þar í bæ og vann þar í 12 ár. Vann svo við aðra verslun þar í bæ en árið 1907 flutti hann til Winnipeg og opnaði verslun á góðum stað í miðborginni.