ID: 9336
Fæðingarár : 1847
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1924

María Stefanía Sigurðardóttir Mynd VÍÆ III
María Stefanía Sigurðardóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 10. júlí, 1847. Dáin 3. júní, 1924 í N. Dakota.
Maki: 1873 Haraldur Þorláksson f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1847, d. í N. Dakota árið 1915. Thorlakson vestra.
Börn: 1. Lovísa Björg f. 21. september, 1875 2. Páll 3. Pálína 4. Ásta 5. Gunnar. Þau eiguðust fimm önnur börn sem öll létust fyrir 1897.
Haraldur og María fluttu vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1872. Bjuggu þar nokkur ár en settust svo að í Shawanobyggð. Þar voru þau til ársins 1879 en þá settust þau að í N. Dakota. Þar námu þau land í dæld neðan við hæð þar sem þorpið Mountain stendur í dag. Hét byggðin sem þar myndaðist Víkurbyggð.
