Marteinn M Jónasson

ID: 17747
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1878
Dánarár : 1953

Marteinn M Jónasson Mynd Almanak 1932

Þorbjörg Finnbogadóttir Mynd Almanak 1932

Marteinn Magnússon: Fæddur í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi 10. september 1878. Var Jónasson vestra. Dáinn 16. apríl, 1953

Maki: 21. september, 1902 Þorbjörg Finnbogadóttir f. 13. júlí, 1883 í Húnavatnssýslu.

Börn: 1. Florence f. 19. september, 1907.

Marteinn ólst upp í Fljótsbyggð, vann um skeið á Hnausum við verslun en tók land í Víðir- og Sandhæðabyggð og flutti á það 1909. Seldi landið 1919 og flutti til Árborgar. Þorbjörg fór vestur með foreldrum sínum, Finnboga Finnbogasyni og Agnesi Jónatansdóttur árið 1883. Þau settust að í Hnausabyggð á Finnbogastöðum.