Metúsalem Vigfússon

ID: 14179
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Metúsalem Vigfússon Mynd AOT

Metúsalem Vigfússon fæddist á Háreksstöðum í N. Múlasýslu 20. júní, 1855. Metusalem V. Peterson vestra.

Maki: 1889 Borgildur Sigmundsdóttir f. 23. október, 1872 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Anna Sigrún f. í október, 1890 í N. Dakota 2. Lovísa Vilborg f. 1893 í N. Dakota 3. Vilhelmína Friðrika f. í janúar, 1897 í Minnesota 4. Pétur Vigfús f. 1899 í Minnesota 5. Páll Vilhjálmur f. um 1904 í Minnesota 6. Haraldur Björgvin f. 1915.

Metúsalem flutti til Nýja Íslands árið 1876 þar sem hann dvaldi um hríð, fékk svo járnbrautarvinnu vestur af Winnipeg. Vann á ýmsum stöðum í Manitoba til ársins 1880, flutti þá suður til N. Dakota. Borghildur fór vestur til Nýja Íslands árið 1878 með móður sinni, Guðrúnu Einarsdóttur og Vilhjálmi bróður sínum. Þau fluttu þaðan til Mountain í N. Dakota árið 1883 þar sem Guðrún varð úti snemma árs, 1884. Borghildur og Vilhjálmur voru tekin í fóstur á Mountain. Metúsalem og Borghildur hófu búskap á litlu landi suðaustur af Mountain og þar bjuggu þau til ársins 1896 en þá settust þau að í Roseau í Minnesota. Eftir ellefu ár seldi Metúsalem land sitt og bústofn og fluttu þau nú vestur til Blaine í Washington. Þar voru þau til ársins 1917 en þá komu þau sér fyrir í Yakima þar sem þau stunduðu aldinrækt um árabil með börnum sínum.