Minnie Guðjónsdóttir

ID: 19858
Fædd(ur) vestra

Minnie Guðjónsdóttir fæddist í Winnipeg.

Maki: 27. nóvember, 1915 Páll Sigurjónsson f. í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1886. Dáinn í Wynyard árið 1926.

Börn: 1. Valgerður Oddný Eleanor d. í æsku 2. Lincoln Paul.

Minnie var dóttir Guðjóns Jónssonar og Oddnýjar Einarsdóttur í Winnipeg. Páll ólst upp í Garðarbyggð en flutti í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905, sama ár og faðir hans, Sigurjón Sveinsson. Þar nam Páll land en flutti af því seinna og hóf rekstur járnvöruverslunar í Wynyard.