Oddný Jónína Jakobsdóttir fæddist árið 1875 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin í Winnipeg 21. janúar, 1918.
Maki: Árni Eggertsson f. í Mýrasýslu 8. maí, 1873, d. í Winnipeg, 12. febrúar, 1942.
Börn: 1. Árni f. 10. janúar, 1896 2. Sigurbjörg Thelma 3. Eggert Grettir 4. Egill Ragnar 5. Sigurður Hjalti.
Oddný fór vestur til Kanada árið 1884 með foreldrum sínum, Jakobi Oddssyni og Sigurbjörgu Jónsdóttur og systkinum. Árni fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum árið 1887 og bjó þar alla tíð. Árni var atkvæðamikill í íslenska samfélaginu í Manitoba, virkur þátttakandi í kirkjulegri starfsemi Íslendinga í Vesturheimi, sat í borgarstjórn í Winnipeg og lét málefni Manitoba sig miklu varða. Hann var einn af stofnendum Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi og vann alla tíð að tengslum Vestur Íslendinga og Íslands. Hann var einn af stofnendum Eimskipafélags Íslands og sat í stjórn þess fyrir hönd Vestur Íslendinga til ársins 1941.
