Ólafur N Kárdal

ID: 20418
Fæðingarár : 1910

Ólafur N Kárdal Mynd VÍÆ I

Ólafur Norðfjörð Jónsson fæddist á Blönduósi í Húnavatnssýslu 25. ágúst, 1910. Kárdal vestra.

Maki: 5. maí, 1940 Sylvía Guðnadóttir f. 1. ágúst, 1910.

Börn: 1. Sylvia May f. 1. maí, 1941.

Ólafur var sonur Jóns Konráðssonar og Guðfinnu Þorsteinsdóttur frá Kárdalstungu í Vatnsdal í Húnavatnssýslu. Hann flutti með þeim vestur til Nýja Íslands árið 1923. Þar gekk Ólafur í miðskóla en 15 ára hóf hann vinnu við fiskveiðar í Winnipegvatni og stundaði þær til ársins 1949. Sylvía var dóttir Guðna Þorsteinssonar og Kristínar Jóhannsdóttur á Gimli í Manitoba.

Íslensk arfleifð :