Páll Jónsson

ID: 7976
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Páll Jónsson og Snjólaug Jóhannsdóttir. Fyrir aftand standa Jón, Magnúsína Sigurrós og Anna Þorbjörg. Hjörný fyrir framan Jón og Arnfríður milli foreldra sinna. Sennilega situr Snjólaug með Vigfús. Mynd úr einkasafni.

Páll Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1861. Paul Johnson vestra.

Maki: 1890 Snjólaug Jóhannsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1868.

Börn: 1. Jón Hólm 2. Magnúsína Sigurrós 3. Anna Þorbjörg 4. Hjörný Jóhanna 5. Arnfríður Halldóra 6. Vigfús Hólm 7. Guðmundur Sófónías Hólm

Þau fluttu vestur árið 1891 og fóru fyrst til N. Dakota. Þaðan lá leiðin í Qu’Appelledal í Saskatchewan þar sem þau bjuggu í fjögur ár. Þaðan fluttu þau í Brownbyggð í Manitoba og voru þar í fimm ár. Þá fluttu þau aftur til N. Dakota og þaðan árið 1910 í Kandahar í Vatnabyggð.