Pálmi Jónsson

ID: 18213
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1892

Pálmi Jónsson Mynd VÍÆ II

Pálmi Jónsson fæddist á Gimli í Manitoba 13. febrúar, 1892. Pálmi J. Stefánsson oftast vestra.

Maki: 7. ágúst, 1924 Kristín Halldórsdóttir f. 16. apríl, 1896.

Börn: 1. Florence Valdina f. 15. mars, 1927 2. Baldur Lorne f. 3. mars, 1929 3. Clara Hólmfríður f. 24. apríl, 1935 4. Jón Pálmi f. 3. nóvember, 1937.

Pálmi var sonur Jóns Stefánssonar og Sæunnar Jónsdóttur í Steep Rock, Manitoba. Hann stundaði bæði landbúnað og fiskveiðar meðan hann bjó í Nýja Íslandi. Flutti til Steep Rock 1912 og bjó þar eftir það. Kristín gekk í grunn- og miðskóla í Gimli, fór þaðan í kennarskólamenntun í Brandon. Kenndi um skeið áður en hún gekk í hjónaband og líka eftir að börn hennar uxu úr grasi og gátu fylgt henni í vinnu. Var í Allenby skólanum í Steep Rock.