ID: 9784
Fæðingarár : 1841
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1917

Pétur Pétursson Mynd Ættir Þingeyinga I
Pétur Pétursson fæddist 1. nóvember, 1841 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Foam Lake í Vatnabyggð 19. júní, 1917.
Ekkill
Börn: Pétur átti 12 börn með átta konum, Eftirtalin fluttu vestur eða fæddust þar: Með Sigurbjörgu Tómasdóttur 1. Sigríður f. 18. febrúar, 1864. Með Þórunni Davíðsdóttur 1. Lilja f. 30. janúar, 1902 á Big Point í Manitoba, d. í Vatnabyggð 27. júní, 1939. Með Kristínu Albertu Sigurðardóttur, ónafngreind dóttir.
Pétur flutti einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900 og fór til Sigríðar, dóttur sinnar á Big Point. Þar bjó hún þá með manni sínum, Bjarna Davíðssyni en 1906 fluttu þau norður í Vatnabyggð í Saskatchewan og settust að í Foam Lake. Var Pétur þar búsettur með þeim.
