Rannveig Jófríður Albertsdóttir fæddist 1895 að Selsstöðum í Geysirbyggð. Dáin í Manitoba 1991.
Maki: Jón Vídalín Magnússon f. í Nýjabæ í Hnausabyggð árið 1885, d. þar 13. júlí, 1963.
Börn: 1. Sigursteinn Halldór f. 1913 2. Ingibjörg f. 1915 3. Albert Magnús f. 1918 4. Sigurrós Laufey f. 3. febrúar, 1922 5. Ásta Sigríður f. 1922 6. Gunnsteinn Halldór f.12. nóvember, 1923 7. Jóhannes Lawrence f. 1924 8.Valgerður Jónína f. 30. ágúst, 1927 9. Helga Magnúsína.
Rannveig var dóttir Alberts Sigursteinssonar og Sigurrósar Guðrúnar Jónsdóttur á Selsstöðum í Geysisbyggð í Manitoba. Jón var sonur Magnúsar Magnússonar og Ingibjargar Sveinsdóttur á Eyjólfsstöðum í Hnausabyggð í Nýja Íslandi. Þegar Jón hafði aldur til fór hann að veiða í Winnipegvatni með eldri bræðrum en þeir höfðu stofnað fyrirtækið Magnusson Bros. Company. Seinna fór hann að smíða báta. Jón og Rannveig bjuggu alla tíð í Magnusville í Hnausabyggðinni.