
Rögnvaldur Sveinsson Mynd VÍÆ IV
Rögnvaldur Sveinsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 16. júlí, 1879. Valdi Swainson vestra.
Maki: Jóhanna Björnsdóttir f. 3. nóvember, 1876 í Strandarsýslu.
Börn: 1. Sveinn f. 6. ágúst, 1901 2. Þóra (Thora) f. 10. janúar, 1903 3. Solveig (Solla) f. 15. apríl, 1905 4. Björn (Barney) f. 4. febrúar, 1908 5. Veronika Ragnheiður f. 1910 (Heiða)
Rögnvaldur fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systkinum árið 1883. Jóhanna fór sama ár vestur þangað með sínum foreldrum, Birni Jósefssyni og Þóru Guðmundsdóttur og systkinum. Rögnvaldur og Jóhanna hófu búskap í Selkirk en fluttu vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og námu land í Vatnabyggð. Þau seldu það seinna, fluttu til Saskatoon þar sem þau bjuggu einhver ár. Þaðan lá svo leiðin til Vancouver í Bresku Kolumbíu.
