Rósa Brynjólfsdóttir

ID: 7169
Fæðingarár : 1859

Sumarrós Brynjólfsdóttir fæddist í Húnavatnssýslu árið 1859. Rósa vestra.

Maki: Jón Ágúst Björnsson f. í Hínavatnssýslu árið 1858. Burns vestra.

Börn: 1. Halldór f. 1893 2. Þorvaldur f. 1894 3. Ingibjörg Þórunn Elízabet f. 1896 4. Jón 5. Brynjólfur Haraldur f. 1902 6. Eggert Arinbjörn f. 1904.

Rósa flutti til Vesturheims árið 1883. Jón flutti til Vesturheims árið 1881 og bjó fyrst í Winnipeg í þrjú ár. Þaðan lá svo leið hans vestur til Seattle í Washington þar sem hann bjó þangað til hann settist að á Point Roberts árið 1893. Þar nam hann land, nánast allt skógi vaxið. Hann hreinsaði það og byggði gott hús sem lengi var talið eitt vandaðasta á tanganum.