ID: 9489
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1913
Rósa Marteinsdóttir fæddist árið 1858 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Vatnabyggð 12. nóvember, 1913.
Maki: Jón K Halldórsson f. 1850 í S. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1. Halldór 2. Anna. Bæði fædd í Nebraska.
Rósa, dóttir Marteins Guðlaugssonar og Sigríðar Guðmundsdóttur, fór vestur árið 1882. Jón fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873. Hann fór ári seinna til Nebraska þar sem hann nam land. Þau fluttu í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og settust að í Wynyardbyggð.
