
Sæmundur Eiríksson og Elína Jónasdóttir Mynd SÍND
Sæmundur Eiríksson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 14. júní, 1833. Dáinn 21. mars, 1921 í N. Dakota.
Maki: 1) 1856 Sigríður Jóhannesdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1833, d. 1882. 2) 1884 Elína Jónasdóttir f. 1. ágúst, 1839, d. 15. júlí, 1922.
Börn: Með Sigríði: 1. Sigríður Ásta f. 1858 2. Jóhannes f. 1860 3. Eiríkur f. 1863 4. Jónína f. 1867 5. Jón f. 1873 6. Sigurjón f. 1875 7. Snjólaug f. 1878. Með Elínu 1. Jón dó ungur.
Sæmundur og Sigríður fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1882. Þau fóru suður í Garðarbyggð með fjögur yngstu börn sín, hin urðu eftir í Winnipeg hjá venslafólki. Elína fór vestur til Winnipeg í Manitoba með sínum manni, Jóni Folmer Hanssyni og börnum árið 1878. Jón dó stuttu eftir komuna þangað en Elína nam land suður af Mountain í N. Dakota. Þar bjuggu þau Sæmundur og hún til ársins 1918 en fluttu þá til Mountain. Ári síðar fluttu þau til Jóhannesar, sonar Sæmundar í Hensel í N. Dakota og bjuggu þar sem eftir var.
