
Standandi: Bjarni, Aðalsteinn og Anna. Sigfús situ með Sigfús Þórhall Mynd RbQ
Sigfús Sigfússon fæddist 21. mars, 1868 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Washington 17. mars, 1954, grafinn í Blaine.
Maki: 16. desember, 1892 Anna Bjarnadóttir f. 1867, d. 5. september, 1945 í Wynyard.
Börn: 1. Aðalsteinn f. 3. október, 1893 2. Bjarni f. 3. september, 1897, d. 29. mars, 1917 3. Sigfús Þórhallur f. 28. desember, 1910.
Sigfús flutti vestur árið 1882 með foreldrum sínum, Sigfúsi Jónassyni Bergamann og Þórunni Jónsdóttur, landnema í N. Dakota. Anna fór vestur árið 1879 með sínum foreldrum, Bjarna Olgeirssyni og Guðrúnu Ásmundsdóttur sem bjuggu í Garðarbyggð í N. Dakota. Sigfús og Anna hófu búskap í N. Dakota, fluttu þaðan til bæjarins Warrington í Oregon skömmu eftir aldamót og bjuggu þar í tvö ár. Árið 1905 fluttu þau vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land á milli Quill vatnanna. Þar reyndu þau búskap í fáein ár en fluttu 1909 í Wynyard þar sem Sigfús hóf verslunarrekstur. Á næstu árum fór Sigfús að hafa áhuga á andalækningum, lærði fræðin í Wisconsin og hugðist stunda lækningar í Vatnabyggð en það gekk ekki því lög í fylkinu bönnuðu slíkt. Flutti hann þá til Winnipeg þar sem reyndi fyrir sér en þaðan lá svo leið hans vestur til Washington og þar bjó hann til dauðadags.
