Sigríður Jóhannsdóttir

ID: 9732
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1937

Sigríður Jóhannsdóttir fæddist 17. nóvember, 1863 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 14. október, 1937.

Maki: Sigtryggur Jóhannsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu  1865.

Barnlaus, kjörsonur Johan Halldór Jóhannsson f. 4. apríl, 1906 í Alberta.

Sigríður flutti vestur um haf árið 1890 og hefur trúlega farið til Manitoba. Sigtryggur, kvæntur maður, flutti til Kanada árið 1888 samferða Gunnari og Kristjáni, bræðrum sínum. Allir settust þeir að í Alberta nýlendunni. Sigtryggur bjó í Alberta árin 1889-1892, flutti þá austur í Argylebyggð í Manitoba þar sem hann var til ársins 1899. Sneri þá aftur vestur til Alberta, á land sitt nærri Tindastól pósthúsi og bjó þar síðan. Upplýsingar vantar um örlög fyrri konu hans vestra og hvar fundum hans og Sigríðar Jóhannsdóttir bar saman. Upplýsingar vantar um báðar konur Sigtryggs vestra.