Sigríður Jónsdóttir

ID: 14202
Fæðingarár : 1876
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla

Sigríður Jónsdóttir fæddist árið 1876 í S. Múlasýslu.

Maki: 9. maí, 1895 Albert Ólafsson f. 9. mars, 1869 í N. Múlasýslu. Albert W. Johnson vestra.

Börn: 1. Elín María f. 21. nóvember, 1895 2. Ólafur Sigfinnur f. 7. nóvember, 1897 3. Kristín Valgerður f. 28. janúar, 1899 4. Karólína Sigurbjörg  f. 9. júní, 1901  5. Guðný (Winnie) Jóhanna f. 13. júní, 1904 6. Albert Björgvin f. 8. október 1906  7. Jón Sigurður f. 23. ágúst, 1908 8. Edward Jón f. 11. nóvember, 1911, d. 1912 9. Kristján f. 1913 10. Paul f.1915

Sigríður fór vestur til Minnesota með foreldrum sínum, Jóni Eyjólfssyni og Maríu Jónsdóttur árið 1883.  Albert fór vestur til Minnesota með foreldrum sínum, Ólafi Jónssyni og  Elínu Eyjólfsdóttur árið 1878. Þau bjuggu í Lincolnbyggð en laust fyrir 1920 bjuggu Albert og kona hans í Minneota. Þau fluttu vestur á Kyrrahafsströnd og voru þar í tvö ár en fluttu þaðan til Manitoba  og settust að í Cypressbyggð.