Sigríður Jónsdóttir

ID: 2401
Fæðingarár : 1844
Fæðingarstaður : Mýrasýsla

Sigríður Jónsdóttir fæddist 1. febrúar, 1844 í Mýrasýslu.

Maki: 1871 Jón Jónsson f. í Mýrasýslu 1. febrúar, 1846, d. í Manitoba 1. júlí, 1943.

Börn: 1. Þorbjörg f. 1872 2. Jón f. 1873 3. Kristín f. 1876 4. Helga f. 1878 5. Stefanía 6. Ólafía.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1878 og fóru út í Mikley í Nýja Íslandi. Þar bjuggu þau í 24 ár en fluttu árið 1902 í Lundarbyggð. Þar gerðist Jón póstmaður sem hann nefndi Hof en það var afbakað í Hove. Í vesturíslenskum heimildum er Hove nafnið talsvert notað um sveitina þar sem Jón bjó. Árið 1913 fluttu þau aftur að Winnipegvatni og bjuggu norður af Gimli.