Sigríður Ólafsdóttir

ID: 8730
Fæðingarár : 1849
Dánarár : 1932

Sigríður Ólafsdóttir Mynd VÍÆ III

Sigríður Ólafsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 3. apríl, 1849. Dáin 23. maí, 1932 í Nýja Íslandi.

Maki: 15. maí, 1874 Jóhann Vilhjálmur Jónsson f. 6. febrúar, 1851 í Eyjafjarðarsýslu, d. 18. mars, 1923 í Víðirnesbyggð.

Börn: 1. Hólmfríður f. 1871 2. Jón Ólafur f. 9. nóvember, 1875 í tjaldi á Víðirnesi í Nýja Íslandi 3. Sigurpálmi 4. María.

Jóhann flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og dvaldi í Kinmount fyrsta veturinn. Flutti þaðan til Nýja Íslands ári síðar og nam land í Víðirnesbyggð suður af Gimli og nefndi Bólstað. Þar bjó hann í 27 ár en færði sig svo til í byggðinni árið 1903, nam land nokkuð vestra og nefndi Breiðabólstað.