Sigríður Þorsteinsdóttir

ID: 2940
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1875
Fæðingarstaður : V. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1973

Gróa Sigríður og Hallvarður í Winnipeg 1911. Mynd MoO

 Gróa Sigríður Þorsteinsdóttir fæddist 17. apríl, 1875 í V. Skaftafellssýslu, d. 30. desember, 1973.

Maki: 1) Hallvarður Ólafsson f. 27. mars, 1872 í Rangárvallasýslu, d. 29. maí, 1914 í Masset á Queen Charlotte eyju. 2) Kristján Einarsson fæddist í Rangárvallasýslu 13. júlí, 1873. Dáinn 8. desember, 1964 í Ósland.

Börn: Með Hallvarði 1. Ólafur f. 13. febrúar, 1904, d. 8. mars, 1993 í Prince Rupert í Bresku Kolumbíu 2. Þórhildur f. 4. febrúar, 1907 3. Svanhvít f. 30. maí, 1908, d. 26. october, 2000 í Vancouver. Með Kristjáni 1. Ásta Katrín 2. Elín Jóhanna f. 17. júlí, 1917.

Hallvarður flutti vestur til Winnipeg árið 1909 og fór Gróa Sigríður á eftir honum með börnin árið 1911. Árið 1912 fluttu þau vestur að Kyrrahafi og settust að á Queen Charlotte eyjum. Kristján fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1910 og vann þar við trésmíðar. Flutti þaðan til Masset á Queen Charlotte eyjum í Bresku Kolumbíu og kvæntist þar ekkjunni Gróu Sigríði. Þau fluttu í Ósland byggð þar sem Kristján stundaði fiskveiðar (lax) á sumrin en trésmíðar á veturna.