Sigþrúður Þorkelsdóttir

ID: 14086
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1895

Sigþrúður Þorkelsdóttir fæddist 31.júlí, 1854 í S. Múlasýslu. Dáin 25.janúar, 1895 í N. Dakota.

Maki: 23. október, 1874 Pétur Bjarnason fæddist 19. nóvember, 1849 í S. Múlasýslu.

Börn: 1. Þorkell Scheving f. 27. ágúst, 1875. Fæddist annað hvort á sjóleiðinni vestur eða á landleiðinni til Nýja Íslands. Dáinn 1876. 2. Ólöf Sigríður f. 17. desember, 1877. 3. Lára Axelína f. 15. september, 1879. Dáin 3. apríl, 1894. 4. Þorkell Scheving f. 13. september, 1882. Dáinn 8. ágúst, 1893. 5. Gestur f. 3. júlí, 1892.

Pétur og Sigþrúður fóru vestur árið 1875 og var Einar, bróðir Sigþrúðar þeim samferða. Þau voru í fyrsta hópnum sem kom til Nýja Íslands í október, 1875. Þau tóku land í Breiðuvík í Hnausabyggð og kölluðu það Eyrarbakki. Fluttu þaðan eftir nokkur ár og settust að á landi suður af Cavalier. Árið 1901 flutti Pétur vestur að hafi og fór til Seattle. Hann keypti land árið 1909 í Birch Bay þar sem hann bjó allmörg ár.