Sigtryggur Guðmundsson

ID: 8510
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1952

Sigtryggur Guðmundsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 14. febrúar, 1874. Dáinn í Wynyard, Saskatchewan 14. desember, 1952.  Goodman vestra.

Maki: 1918 Arnþrúður Gunnlaugsdóttir f. í Pembina, N. Dakota 19. janúar, 1899, d. 21. nóvember, 1980.

Börn: 1. Pálmi f. 21. september, 1919 2. Halldóra f. 6. febrúar, 1921 3. Gunnlaugur f. 27. október, 1922 4. Lilja Sigríður f. 12. september, 1925 5. Ólafur f. 6. nóvember, 1926 6. Þórey (Thorey) f. 13. apríl, 1931 7. Kristín Ingibjörg f. 5. ágúst, 1933 8. Vilhjálmur Karl f. 23. ágúst, 1934 9. Gerður Róssfríður f. 16. ágúst, 1938. Öll fædd í Wynyard í Vatnabyggð.

Sigtryggur flutti vestur árið 1901, samferða föður sínum, Guðmundi Kristjánssyni og seinni konu hans, Sigríði Helgadóttur. Þau fóru til Pembina í N. Dakota. Sigtryggur flutti í Vallarbyggð í Saskatchewan árið 1903 en keypti síðan land í Vatnabyggð nærri Wynyard árið 1912. Seldi það reyndar stuttu seinna og keypti annað í sömu byggð og bjó þar. Arnþrúður var dóttir Gunnlaugs Gíslasonar og Halldóru Jónasdóttur, sem vestur fluttu árið 1888.

Aftast Lilja, Gunnlaugur, Pálmi, Ólafur og Halldóra. Þórey stendur fyrir framan Lilju, Vilhjálmur situr við hlið móður sinnar, þá Arnþrúður, Sigtryggur og Kristín við hlið hans. Milli foreldra sinna er Gerður. Mynd RbQ