Sigurbjörg Benediktsdóttir fæddist árið 1860 í Skagafjarðarsýslu. Dáin árið 1933 í Edmonton.
Maki: 1881 Jón Jónsson f. í Skagafjarðarsýslu 1. maí, 1860. Dáinn í Edmonton í Alberta 6. febrúar, 1949. Johnson vestra.
Börn: 1. Ólafur Tryggvi f. 12. maí, 1882, d. 7. júní, 1932 2. Hólmfríður 3. Pétur 4. Karl Jón 5. Ingiríður 6. Benedikt Albert f. í Markerville 11. október, 1890, d. 1. maí, 1910 7. Snorri Edmund.
Sigurbjörg flutti vestur til Kanada árið 1874 með foreldrum sínum, Benedikt Ólafssyni og Hólmfríði Bjarnadóttur. Jón flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Jóni Péturssyni og Ingunni Ólafsdóttur árið 1876. Þau settust að í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi þar sem þau bjuggu til ársins 1880, voru í Winnipeg til vors 1881 en fluttu þá í Hallsonbyggð í N. Dakota. Þar kvæntist Jón og hóf búskap beð Sigurbjörgu. Þau fluttu vestur til Calgary árið 1888 en námu land í Markerville þar sem þau bjuggu til ársins 1903. Þá fluttu þau til Edmonton sem var í mikilli uppbyggingu og Jón fór að stunda fasteignaviðskipti. Hann efnaðist vel á næstu árum.
