Sigurbjörg Sigbjörnsdóttir

ID: 12046
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1905

Sigurbjörg Sigbjörnsdóttir fæddist 8. mars, 1877 í N. Múlasýslu. Dáin í Lyon sýslu í Minnesota 10. júlí, 1905.

Maki: 6. febrúar, 1901 Þórður Þórðarson f. í Húnavatnssýslu árið 1865, d. í Minneota 2. ágúst, 1939. Dr. Thordur Thordarson vestra.

Börn: 1. Vilhelm f. 13. desember, 1901 2. María Aðalbjörg f. 6. ágúst, 1903 3. Sigurbjörg f. 28. júní, 1905.

Sigurbjörg fór vestur um haf með foreldrum sínum, Sigbirni Ásbjörnssyni og Stefaníu Magnúsdóttur. Þau settust að í Selkirk. Sigurbjörg fór suður til Minnesota í nám rétt fyrir aldamótin.  Þórður flutti vestur árið 1887 eftir að hafa lokið prófi við Latínuskólann í Reykjavík. Hann las fræðin við Cornell University og árin 1893-97 las hann læknisfræðin í Chicago. Flutti til Minneota og stundaði lækningar til dauðadags. Ritstýrði Vínlandi í Minneota 1902-1906 meðfram læknisverkum.