Sigurbjörg Stefánsdóttir

ID: 9341
Fæðingarár : 1824
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1904

Sigurbjörg Stefánsdóttir fæddist 1824 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 1904 í N. Dakota.

Maki: Jón Jónsson fæddist 1834 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í N. Dakota 1909.

Börn: 1. Helga Sigríður f. 3. júlí, 1859 2. Jón f. 1. nóvember, 1861

Þau fluttu vestur til Ameríku árið 1873 og fóru strax til Milwaukee í Wisconsin. Þau fluttu vestur á land til Stoughton þar sem þau bjuggu í eitt ár. Vann Jón þá norskum bændum. Þau fluttu í íslesnku nýlenduna í Shawanosýslu í Wisconsin haustið 1874 og bjuggu þar til ársins 1880. Fluttu þá vestur í Garðarbyggð í N. Dakota þar sem þau bjuggu alla tíð.