Sigurður Eyjólfsson

ID: 13212
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1935

Sigurður Eyjólfsson Mynd FAtV

Sigurður Eyjólfsson fæddist í S. Múlasýslu 7. mars, 1852. Dáinn 1. janúar, 1935.

Maki: 1883 Rósa Gísladóttir f. 21. maí, 1866 in Húnavatnssýsla.

Börn: 1. Eyjólfur Gísli, dó fárra mánaða 2. Guðný Sesselja f. 1890, d. 1961 3. Unsteinn Vilberg f. 1892, d. 1973 4. Edward Tryggvi f. 1894, d. 1964 5. Steinunn Guðfinna f. 1899 6. Guðrún Ósk f. 1902, d. 1974.

Sigurður flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með föður sínum, Eyjólfi Magnússyni, konu hans Vilborgu Jónsdóttur og systkinum árið 1876. Bróðir hans, Stefán hafði sest að í Nýja Íslandi ári fyrr og tekið land fyrir föður sinn og fjölskyldu hans. Þar hét Akranes og var í Fljótsbyggð. Þar bjó Sigurður til ársins 1902 en þá flutti hann í Víðirbyggð þar sem hann bjó síðan.