Sigurður Jónsson

ID: 9311
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : Árnessýsla

Sigurður Jónsson Mynd VÍÆ III

Sigurður Jónsson fæddist 16. júlí, 1877 í Árnessýslu. Dáinn í Manitoba 23. júlí, 1952. Sigurdur J. Sigurdson vestra.

Maki: 27. desember, 1901 Sigríður Eggertína Eggertsdóttir f. 24. janúar, 1882 í Dalasýslu.

Börn: 1. Eggert f. 22. maí, 1902 2. Leó Gladstone f. 20. apríl, 1904 3. Jón Percival f. 6. apríl 1905 4. Sigríður f. 14. mars, 1911 5. Árni f. 16. nóvember, 1912 6. Florence Berenice f. 18. september, 1926.

Sigurður fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, JJóni Sigurðssyni og Pálínu Þórðardóttur. Hann fylgdi þeim til N. Dakota og Narrows í Manitoba. Hann flutti þaðan í Álftárdalsbyggð og nam þar land. Flutti  til Winnipeg árið 1906,  þar sem hann bjó í tólf ár. Árið 1918 flutti hann aftur í Álftárdalsbyggð.